Hildur og Benedikt
Myndir
þessa helgi (segi frá því síðar) og Steingrímsstöð sem við fórum í
um verslunarmannahelgina. Er undir "ný myndasíða" vinstra megin
Rhodos 21.-28. júlí
vikan var bara tekin rólega,bíltúrar hingað og þangað og svo
auðvitað fór mikill tími í að hlakka til fyrir Rhodosferðina okkar
fannst þetta ægilega skrýtið, talaði um það heillengi á eftir að
hafa þurft að vakna um miðja nótt. Flugið út gekk ágætlega,
einungis sex tímar :!: Það gætti á smá óþolinmæði hjá lillanum,
enda er ég búin að ákveða að kaupa DVD ferðaspilara áður en við
stig. Einn daginn var meira að segja 48 stig en það var í bænum
Lindos. Við fórum þangað í ferðalag með ferðaskrifstofunni ásamt
því að við fórum að skoða bruggverksmiðju og nokkrar kirkjur.
Skemmtum okkur frábærlega vel. Hélt reyndar að ég myndi bókstaflega
deyja við að ganga upp brekkuna frá Lindos og að rútunni. Þetta er
nefnilega lítill bær með örþröngum götum, helst gátu ekki nema þrír
vera að kaupa og kaupa einhverja draslhluti. Ég lét það eftir honum
endrum og eins. Ég er reyndar búin að ákveða það að fara aldrei
aftur til Grikklands á þessum tíma, allt ALLT of heitt. Í fyrra
vorum við reyndar á Krít á þessum tíma, fannst það samt ekki
jafnsvaðalegt og þetta. Komst líka að þeirri niðurstöðu að lítil og
kósý hótel eru miklu betri heldur en 17 hæða, 700 herbergja, fimm
stjörnu hótel. Morgnarnir byrjuðu yfirleitt á því að bíða í korter
eftir lyftunum, við enduðum einu sinni á því að ganga niður 13
hæðir. Eftir tvo daga bað ég um flutning þar sem ég svaf ekki fyrir
áhyggjum af því að Benedikt dytti niður af svölunum. Þetta voru
nefnilega ekki mjög barnvænar svalir, stórt bil á handriðinu
akkúrat í mittishæðinni á honum. Fengum herbergi á fimmtu hæð með
Hollendingar, Grikkir og Norðurlandabúar. Flestir voru með hálft
fæði innifalið eins og við og jiminn....... þvílíkan ágang og
græðgi hef ég aldrei á ævi minni séð. Fólk hamstraði matinn eins og
þetta væri síðasta kvöldmáltíðin og skyldi svo meirihlutann eftir á
disknum sínum. Hugsar fólk ekkert um örbirgð heimsins og svöngu
börnin? Ég meina, hver étur tíu ristaðar brauðsneiðar í
"kuldann" og á jarðhæðina mína. Engir frekir og snobbaðir
útlendingar að garga á Benedikt fyrir að fikta í útisturtunum,
engar lyftur, bara fjórar tröppur niður og bara 12 stiga hiti en
ekki 48°C. Mæli samt alveg með Rhodos fyrir þá sem þola hita
afslöppun og sumarbústaðaferð með ömmu Sigrúnu. Jebbsss..... við
erum enn eitt árið að fara í Steingrímsstöð við Sogið. Finnst
sumarið vera alveg glatað ef ég kemst ekki þangað. Láta ömmu stjana
við sig og svona..... nei, smá grín. Stjana frekar við hana.
Auðvitað skellum við út stönginni, pabbi er búinn að kaupa makríl.
Á ný á skólabekk
Fékk bréfið í dag..... Hugsa að ég skelli mér. Veit ekki alveg
hvort ég þarf að taka 15 eða 30 einingar.... kemur í ljós seinna
meir. Tek þetta í fjarnámi, þ.e. mæti bara nokkra daga í einu í
skólann og verð svo að læra bara við tölvuna. verður örugglega
föstudag. Sáum lítil lömb fæðast, fannst það æði... hef nefnilega
aldrei séð lömb fæðast. Fyndið að sjá allar ærnar saman í bás með
varð pínuhræddur, grét fyrst smávegis, faldi sig svo bakvið bíla og
kíkti í gegnum rúðurnar á dúkkuna. Eftir smástund fannst honum
þetta alveg frábært. Hann klippti meira að segja út myndir af
Risessunni til að fara með í leikskólann. Um kvöldið horfðum við
auðvitað á Júró. Fannst lagið fínt sem vann. Ragnar og Dóra sátu
hérna hjá okkur og fóru svo í bæinn. Fylgdist eitthvað með
kosningasjónvarpinu og var ægilega glöð þegar ég fór að sofa þegar
ég sá að stjórnin var fallin. Morguninn eftir var hins vegar komin
breytt staða.... Vona bara að prumpuflokkurinn Framsókn verði ekki
í ríkisstjórn. Heyrðuði að Jóna Bjarta vildi halda áfram sem
ráðherra þó hún hafi ekki verið þjóðkjörin á þing. Þvílíkur
Ferð Hrafnistuskvísa til Ljubljana
Slóveníu til að kynna okkur hjúkrunarheimili þar í bæ. Ferðin var
vægast sagt æði og við erum strax byrjaðar að skipuleggja ferð til
Rómar næsta vor. Ég var langyngst en hinar eru á bilinu 18-36 árum
25 gráður yfir daginn og glampandi sól. Við komum seinnipart
fimmtudags og brunuðum auðvitað beint í mollið. Náðum að versla
eitthvað en fórum svo á pizzastað um kvöldið. Daginn eftir var
farið í skipulagða gönguferð um bæinn og helstu staðir skoðaðir.
Löbbuðum í meira en tvo tíma og þar af var gengið upp á mjög stóran
hól í miðju borgarinnar. Þar upp á var kastali og útsýnið var
stórfenglegt. Sáum alla leið til Alpanna. Seinnipartinn var svo
haldið á hjúkrunarheimilið. Við skoðuðum það og fengum síðan
flottar veitingar, þ.á m. slóvenskt rauðvín, sem var bara úbergott
þó ég sé ekki mikið fyrir rautt. Um kvöldið fórum við út að borða
og ætluðum á djammið en þar sem maður er svo gamall og þreyttur þá
Pradjama-kastalann. Ég held að ég hafi gengið af mér rassinn.
Hellarnir voru rosalega flottir en ískaldir, kom til baka með kvef.
Kastalinn er svolítið spes. Hann er í raun byggður fyrir framan
helli lengst uppi í bergklettinum. Eftir ferðina var síðan rokið
beint í mollið. Ég held að mér hafi sjaldan liðið jafnilla í
fótunum. Vældi og vældi í rúmmeitinu mínu um það að ég væri
örugglega að fá blóðtappa þar sem stór bláæð í lærinu á mér stóð
nokkra sentimetra út. Hélt allavega að ég kæmist ekki lifandi
hertekinn Íslendingum. Það voru nefnilega nokkrir hópar þarna úti
með okkur. Náðum alveg ótrúlega vel saman við nokkra þarna úti....
Skiptumst meðal annars á minjagripum við eitt fyrirtækið. Við fenum
áritaða skyrtu með nafni fyrirtækisins og þeir fengu flotta
súmóbleyju sem ein okkar hafði klæðst kvöldinu áður (utan yfir
buxurnar reyndar). Þær voru nefnilega nokkrar sem fóru í
betur góð kaup. Ég keypti forláta kaffikvörn (svona gamaldags),
bronsmortél og bronsbjöllu til að hengja upp á vegg, veit reyndar
ekki alveg hvar ég á að hengja hana upp. Hún er samt algjört
vera þjónustulundaðri, hótelið gerði nokkur mistök, ekki alvarleg
en tvær úr okkar hópi voru settar á herbergi sem var þegar í
útláni. Síðan létu þeir mann alveg finna fyrir því ef þeir voru
þreytti og pirraðir í búðunum. Landið er samt æði og fullt af
Hin fræga Hildur
1. mars 2002
hvað tíminn er fljótur að líða. Lillinn minn, sem ég hélt á í
fanginu á mér í fyrsta sinn fyrir örstuttri stund síðan, er að fara
í skóla á næsta ári. Hann er reyndar ákveðinn í að fara ekki í
fögrum söng sínum í morgunsárið. Síðan söng hann af alefli fyrir
sjálfan sig sem endaði þannig að ég kom of seint í vinnuna. Í dag
fór hann með snakk og melónur í leikskólann til að bjóða hinum
krökkunum upp á. Eftir leikskólann fórum við síðan með Ragnheiði á
Pizza Hut og fékk hann að gera sér ís sjálfur. Á laugardaginn ætlar
hann að halda þetta þvílíka teiti með um 30 manns. Verst að ég á
bara stóla fyrir helminginn af fólkinu. Sorry, einhverjir þurfa að
Ég sé, ég sé...
laseraðgerð á augunum síðasta föstudag. Lýg því ekki að þetta var
frekar óþægilegt, sérstaklega þegar ég fann brunalyktina af augunum
á mér en þetta er allt að koma núna. Aldrei (vonandi) aftur
svona nokkurn veginn. Ragnheiður var svo góð að hjúkra mér um
þorrablót á Laugarvatni. Ji, hvað það var gaman. Við Ragnheiður
vorum að til hálfsex um morguninn. Reyndum meira að segja að
brjótast inn í gufuna, var mjög fegin daginn eftir að hafa ekki
komist yfir grindverkið, hefði annars setið föst þar til tvö daginn
eftir. Svo var frusshúmorinn náttúrulega á hæsta. Þið getið séð
myndirnar inni á myndasíðunni. Setti líka þorrablótsmyndirnar síðan
aðgerðina. Svaf nánast ekkert um helgina, var svo hrædd um að reka
puttana í augun eða eitthvað. Fer svo á sáranámskeið á fimmtudag og
Á skíðum skemmti ég mér...
síðu. Nenni yfirleitt ekki að setjast niður og skrifa en ákvað að
Jólin voru náttúrulega æði þó langt sé um liðið. Benedikt var
Áramótin voru fín líka. Var reyndar kölluð á vakt á gamlárskvöld
vegna veikinda. Var í um fjóra tíma en náði að vera hjá pabba yfir
Hingað til hefur árið verið frekar rólegt hjá okkur. Áfram bara
vinna og rólegheit um helgar. Kíkti reyndar aðeins út á djammið á
þrettándanum en segi það sama og áður... finnst djammið orðið
Benedikt fékk sendingu frá frændfólkinu í Bolungarvík. SKÍÐI. Hann
var svo æstur í að prófa að hann klæddi sig í skíðaskóna og fór út
í garð. Held að hann hafi sjaldan skemmt sér jafnvel, fæturnir fóru
í kross og hann réð ekki við neitt en skellihló samt alveg
svakalega. Verð að drífa mig með hann í brekkurnar bráðlega. Fórum
reyndar í gær upp í Breiðholt í skíðabrekkuna þar og renndum okkur
á snjóþotu. Held að toppurinn hafi verið að fá að spræna á trén í
Jól Jól Jól
Klikkhaus
væla í öllum yfir því að VÍS hafi svikið þau... held að þau ættu nú
barasta að líta í eigin barm. Karlinn réðst meira að segja á
skrifstofumann hjá vís. Held að ég megi teljast heppin að hann kom
ekki í íbúðina þegar ég tjúllaðist yfir fráganginum og barði mig
Annars hefur lítið gerst síðan síðast. Hef samt verið alveg á
fullu... Bakaði piparkökur með Siggu granna og strákunum á
þriðjudag. Fór síðan í gær á Selfoss með Ragnheiði og pabba hennar
til að halda smá fræðslu fyrir fólk af sambýli um samskipti
kynjanna. Fannst það ofboðslega gaman þó ég hafi ekki alveg vitað
Hvað haldiði... fór í Bónus úti á Nesi í dag og fékk þessa fínu
rispu á bílinn minn í leiðinni. Einhver dúndraði svoleiðis í bílinn
minn og ók í burt :cry: Ég sem ætlaði måske að selja hann eftir
Er núna að passa gæjana hennar Siggu granna. Voru ákaflega stilltir
og góðir þó ég hafi nokkrum sinnum þurft að sussa á þá.Mætum svo
öll saman í íþróttaskólann í fyrramálið. Held að ég reyni svo að
kíkja í ræktina (ekki veitir af þar sem ég er búin að liggja í
Vonlaus
auðvitað ekkert en fannst þetta samt ægilega spennó. Kíkti svo á
Sálarball með Gunnhildi hjúkkupíu. Ágætisball en er alls ekki að
fíla players. Voðaleg hverfisstemning þarna, fullt af gömlum
pervertum. Held að ég hafi ekki drukkið nóg fyrir svona ball :D
Svaf til hádegis á laugardag (Benedikt var sko í Keflavík hjá ömmu
og afa alla helgina) og fór svo með ömmu í Kringluna. Náði að kaupa
mér þrjá boli í Zöru, ekkert smá dugleg. Um kvöldið var
jólahlaðborð með deildinni minni á Hrafnistu, fórum í Skíðaskálann
í Hveradölum. Æðislegur matur, borðaði heldur betur yfir mig. Kíkti
síðan á stelpurnar úr hjúkkubekknum og var komin heim rétt eftir
miðnætti. Er maður orðinn gamall eða hvað að þola ekki djamm tvö
kvöld í röð. Annars var ágætt að ná góðum svefni. Eyddi síðan fullt
búin að skrifa hérna. Eftir mikla umhugsun komst ég að því að ég
hef það alveg ágætt ein. Þannig að þið þarna vonbiðlar, látið mig í
Jólagleði
Bara mánuður og einn dagur í jólin. Trúiði þessu??? Get hreinlega
ekki beðið. Búin að fara í gegnum jóladótið mitt og jóladótið á
Hrafnistu og er í skreytingarstellingunum. Ætla reyndar ekki að
vera jafnsnemma í því og mamma sem er búin að setja upp litla
gervitréð inni í stofu. Pæliði í því, hún ætlar ekki að hafa ekta
stórt jólatré um jólin. Heilinn á mér hins vegar hringsnýst yfir
því hvar ég á að setja jólatréð okkar. Fyrsta skiptið sem við erum
Ég ákvað að fresta því að fara í laseraðgerðina fram í febrúar. Sá
fram á það að hafa ekki efni á því. Fasteignasalaaulinn tók svo
ógeðslega mikið fyrir að selja íbúðina, heilar 336 þúsund krónur
fyrir ég veit ekki hvað. Finnst þetta algjört okur. Gekk ekkert smá
erfiðlega að fá fólkið til að skrifa undir. Kom ekki nokkrum sinnum
á umsömdum tíma og loksins þegar hún sagðist ætla að koma og ég
mætt til Keflavíkur, lét enginn sjá sig. Ég ákvað reyndar að skrifa
undir og fékk svo borgað seinna um daginn. Þvílík gleði að geta
borgað alla kreditkortareikningana og klippa kortin. Bílífit or
Benedikt heldur áfram að þeysast upp. Orðinn svo stór. Föt sem eru
tiltölulega ný eru bara að verða of lítil. Ef ykkur vantar að gefa
honum eitthvað í jólagjöf þá eru það föt sem hann vantar. Ég var að
spá í fyrst að gefa honum hamstur. Hann langaði reyndar ekki í hann
heldur frekar í kanínu. Það dýr vil ég sko alls ekki sjá hérna inni
hjá mér svo að ég ákvað að blása það af. Núna er ég að pæla í að
gefa honum trommusett úr Hagkaup.Held að hann verði ægilega ánægður
með það, veit hins vegar ekki um mig. Ein spurði mig hvort ég væri
Um helgina er ég að plana að fara á djammið. Sigurborg ætlar að
halda Víkaradjamm. Hef ekki farið neitt út síðan um miðjan okt.
þegar pabbi hélt upp á afmælið sitt. Ætla svona aðeins að melta
Íbúðin seld :haha:
búin að selja íbúðina. Kaupsamningurinn verður vonandi
undirritaður á morgun eða strax eftir helgi. Ekkert smá fegin
að þetta skuli vera komið í höfn. Fasteignasalinn hringdi svo
í mig á mánudag og sagði að ég þyrfti eiginlega að renna yfir
íbúðina eftir leigjendurna. Ég dreif mig því til Kefló (með
Benedikt veikan) og brá heldur betur í brún þegar ég mætti á
svæðið. Íbúðin var í RÚST!!!! Allir veggir útkrotaðir, drulla
út um allt, dót sem skilið var eftir og ég veit ekki hvað og
hvað, meira að segja hland í klóinu. Eyddi því 5 dýrmætum
klukkutímum í að þrífa SKÍT eftir annað pakk. Hellti mér
gjörsamlega yfir fólkið þegar það sagðist sko ekki ætla að
þrífa betur né taka dótið; ég gæti sko bara hirt það. Ég
ákvað að skella öllu dótinu í bíllinn og henda því á lóðina
fyrir utan húsið þeirra. Ætlaði sko ekki að gera þeim þann
greiða að fara með það á sorpu. Maður verður heldur betur að
gengur lífið sinn vanagang. Vinn mína vinnu og Benedikt er í
leikskólanum. Frekar rólegt allt hjá okkur. Fór út að skemmta mér
um miðjan október og ekkert djamm á næstunni. Ég er nefnilega að
fara í laseraðgerð á augunum 17. nóv. (ef ég finn pening fyrir því)
og má ekki mála augun neitt vikuna á undan. Glætan spætan að ég
fari út að skemmta mér með gleraugun og ómáluð :$ Við lillimann
á Hrafnistu er að plana að fara til útlanda næsta vor í nokkurs
konar skemmti- og vísindaferð. Auðvitað varð ég að troða mér í
nefndina. Ég kemst alltaf betur og betur að því hvað ég er frek...
eins og Ragnheiður sagði um daginn: "ég held að ég hafi ekki hitt
eina einustu meyju sem er ekki ákveðin". Það er bara spurning hvert
við eigum að fara. Mig langar helst til Parísar, New York eða
Ljublana í Slóveníu en vandamálið er að við þurfum að finna
eitthvað elliheimili til að skoða. Hugsa að það væri auðveldast að
fara til New York. Sé til... verð nefnilega að fara að ganga í
PS. er að hlaða inn myndum þessa dagana. Setti meðal annars myndir
úr afmælinu hans pabba og fleira. Er undir
Hva... á ég að skrifa eitthvað??
eiginlega orðin uppgefin eftir 2 vikur og fannst frábært að komast
heim í rigninguna. Annars eyddum við dögunum í sólbaði og sundi
ásamt ströndinni. Get ekki sagt að það hafi verið mjög leiðinlegt
Síðan kíktum við tvisvar í stærstu dótabúð sem ég hef séð. Eyddi
slatta af monníngum þar. Við fórum líka í vatnsleikjagarð. Munaði
engu að við Benedikt brenndum af okkur iljarnar þegar við gengum
yfir trébrú þar, þeir hefðu alveg mátt setja viðvörunarskilti um að
brúin væri tíu sinnum heitari en stéttin. Benedikt vildi svo
endilega fara í lest þannig að við fórum í fjallaferð í lest (sem
Benedikt byrjaði síðan í nýja leikskólanum. Alveg ágætis leikskóli.
Ég byrjaði svo í nýju vinnunni í ágúst. Mikið að komast inn í og
svolítið öðruvísi að fara að stjórna. Ég réð mig sem sagt sem
Síðustu helgi fórum við á Ljósanótt í Kefló. Röltum bara um
göturnar og horfðum á skemmtiatriði. Fórum svo heim um
kvöldmatarleytið og misstum því af flugeldasýningunni. Við sjáum
sprengjurnar hvort sem er um áramótin. Á sunnudaginn fórum við í
heimsókn til Guðrúnar Svövu upp í bústað. Fórum með henni og Palla
flying away