Hildur og Benedikt
Dagsetning
19. mars 2010
Klukkan
20.03.2006 09:25:00 / perla122

Kirtlar og meira poj....

Síðasta mánudag fór ég með Benedikt í aðgerð, hálsinn á honum var að fyllast af hálskirtlum. Þeir voru bókstaflega að loka á honum kokinu. Aðgerðin gekk vel, læknirinn tók líka úr nefinu. Við gistum svo eina nótt á sjúkrahúsinu. Mér fannst nokkuð gaman að fá að prófa það að vera "sjúklingur" eina nótt. Hef aldrei á minni ævi legið á sjúkrahúsi, nema náttúrulega í Hreiðrinu þegar ég átti Bennaling. Við vorum því heima alla síðustu viku og boruðum í nefið. Ótrúlegt samt hvað þetta leið fljótt. Mamma og Óskar kíktu nú aðeins á okkur og Ragnar gisti hjá okkur á föstudag. Gellurnar úr MR komu síðan til okkar á´laugardeginum og borðuðum við hádegismat saman og spiluðum Trivial. Á sunnudaginn buðu pabbi og Guðmunda mér í mat (heima hjá mér reyndar) og amma gamla Sigrún mætti líka. Það var því nóg af heimsóknum í vikunni. Á föstudaginn var vísindaferð hjá 3. og 4. árinu í hjúkrun á HSS. Ég var beðin um að mæta til að kynna pleisið, þurfti svo reyndar ekki að kynna mikið þar sem deildarstjórinn minn gat mætt á síðustu stundu. Ég fékk því að skoða sjúkrahúsið enn betur sjálf og fá mér glæsilegar veitingar. Reyndar ákvað ég að sleppa hvítvíninu og fá mér barasta kók í staðinn. Hitti þarna fullt af hjúkkupíum sem ég hef ekki séð í langan tima. Ég var svo komin heim um hálfníu um kvöldið og þurfti auðvitað að byrja á því að elda þar sem minn elskulegi bróðir gat ekki látið detta sér í hug að elda. Ég missti því eitthvað af idolinu. Er reyndar alveg brjáluð yfir þessu ædoli núna... vildi sko ekki að Alexander myndi detta út. Hann er 10x betri söngvari en þessi Snorri selur. Skil bara ekki svona svindl. Ég ætla að byrja svo í ungbarnaeftirlitinu nú í vikunni, verður spennó að byrja á einhverju nýju. Bið að heilsa að sinni....

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 11:24:52 / perla122

Hann á afmæli í dag....

Benedikt vaknaði í morgun við fagran söng móður sinnar. Lillinn minn á nefnilega afmæli í dag, orðin fjögurra ára gæi. Ji, hvað tíminn líður. Fyrir akkúrat fjórum árum var ég að springa úr óléttu, var í skólanum og ægilega feginn þegar einn kennarinn var veikur. Þá gat ég nefnilega farið heim að leggja mig :) Ég þurfti svo að fara á vakt á St. Jósefs um kvöldið í síðasta verknámstímann minn og var mjög fegin að geta lagt mig um daginn. Svo ákvað Benedikt að koma á óvart, 2 vikum fyrir áætlaðan tíma. Mér finnst svo stutt síðan ég fékk lillann minn í hendurnar í fyrsta skiptið.

Svo er náttúrulega öskudagur í dag þannig að hann fór í búning í leikskólann. Hann valdi Bósa ljósár búning, ofsalega flottur í honum :haha: . Gaman fyrir hann að eiga afmæli á öskudag. Við ætlum svo að halda upp á það næsta laugardag með kökum og tilheyrandi.

Bið að heilsa í bili


» 3 hafa sagt sína skoðun


Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 37685