Muniði eftir leigjendunum sem ég leigði íbúðina mína í Keflavík og
skiluðu henni ömurlegri til baka?? Þessi fífl eru núna að
væla í öllum yfir því að VÍS hafi svikið þau... held að þau ættu nú
barasta að líta í eigin barm. Karlinn réðst meira að segja á
skrifstofumann hjá vís. Held að ég megi teljast heppin að hann kom
ekki í íbúðina þegar ég tjúllaðist yfir fráganginum og barði mig
Annars hefur lítið gerst síðan síðast. Hef samt verið alveg á
fullu... Bakaði piparkökur með Siggu granna og strákunum á
þriðjudag. Fór síðan í gær á Selfoss með Ragnheiði og pabba hennar
til að halda smá fræðslu fyrir fólk af sambýli um samskipti
kynjanna. Fannst það ofboðslega gaman þó ég hafi ekki alveg vitað
um hvað ég átti að tala. Gekk held ég ágætlega.
Hvað haldiði... fór í Bónus úti á Nesi í dag og fékk þessa fínu
rispu á bílinn minn í leiðinni. Einhver dúndraði svoleiðis í bílinn
minn og ók í burt

Ég sem ætlaði måske að selja hann eftir
áramótin. Féll örugglega slatta í verði við þetta.
Er núna að passa gæjana hennar Siggu granna. Voru ákaflega stilltir
og góðir þó ég hafi nokkrum sinnum þurft að sussa á þá.Mætum svo
öll saman í íþróttaskólann í fyrramálið. Held að ég reyni svo að
kíkja í ræktina (ekki veitir af þar sem ég er búin að liggja í
Hersey's peanutbutter kisses í gær og í dag).
Kveð að sinni