Hildur og Benedikt
Dagsetning
19. mars 2010
Klukkan
23.11.2006 17:50:43 / perla122

Jólagleði


Bara mánuður og einn dagur í jólin. Trúiði þessu??? Get hreinlega ekki beðið. Búin að fara í gegnum jóladótið mitt og jóladótið á Hrafnistu og er í skreytingarstellingunum. Ætla reyndar ekki að vera jafnsnemma í því og mamma sem er búin að setja upp litla gervitréð inni í stofu. Pæliði í því, hún ætlar ekki að hafa ekta stórt jólatré um jólin. Heilinn á mér hins vegar hringsnýst yfir því hvar ég á að setja jólatréð okkar. Fyrsta skiptið sem við erum með svona stóra stofu og nóg af plássi að velja um.

Ég ákvað að fresta því að fara í laseraðgerðina fram í febrúar. Sá fram á það að hafa ekki efni á því. Fasteignasalaaulinn tók svo ógeðslega mikið fyrir að selja íbúðina, heilar 336 þúsund krónur fyrir ég veit ekki hvað. Finnst þetta algjört okur. Gekk ekkert smá erfiðlega að fá fólkið til að skrifa undir. Kom ekki nokkrum sinnum á umsömdum tíma og loksins þegar hún sagðist ætla að koma og ég mætt til Keflavíkur, lét enginn sjá sig. Ég ákvað reyndar að skrifa undir og fékk svo borgað seinna um daginn. Þvílík gleði að geta borgað alla kreditkortareikningana og klippa kortin. Bílífit or not, ég var komin með þrjú kort. Algjör bilun.

Benedikt heldur áfram að þeysast upp. Orðinn svo stór. Föt sem eru tiltölulega ný eru bara að verða of lítil. Ef ykkur vantar að gefa honum eitthvað í jólagjöf þá eru það föt sem hann vantar. Ég var að spá í fyrst að gefa honum hamstur. Hann langaði reyndar ekki í hann heldur frekar í kanínu. Það dýr vil ég sko alls ekki sjá hérna inni hjá mér svo að ég ákvað að blása það af. Núna er ég að pæla í að gefa honum trommusett úr Hagkaup.Held að hann verði ægilega ánægður með það, veit hins vegar ekki um mig. Ein spurði mig hvort ég væri haldin einhverri sjálfseyðingarhvöt.... ætli það ekki.

Um helgina er ég að plana að fara á djammið. Sigurborg ætlar að halda Víkaradjamm. Hef ekki farið neitt út síðan um miðjan okt. þegar pabbi hélt upp á afmælið sitt. Ætla svona aðeins að melta þetta.
Bless í bili

» 3 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 19:40:04 / perla122

Íbúðin seld :haha:

Úje... búin að selja íbúðina. Kaupsamningurinn verður vonandi undirritaður á morgun eða strax eftir helgi. Ekkert smá fegin að þetta skuli vera komið í höfn. Fasteignasalinn hringdi svo í mig á mánudag og sagði að ég þyrfti eiginlega að renna yfir íbúðina eftir leigjendurna. Ég dreif mig því til Kefló (með Benedikt veikan) og brá heldur betur í brún þegar ég mætti á svæðið. Íbúðin var í RÚST!!!! Allir veggir útkrotaðir, drulla út um allt, dót sem skilið var eftir og ég veit ekki hvað og hvað, meira að segja hland í klóinu. Eyddi því 5 dýrmætum klukkutímum í að þrífa SKÍT eftir annað pakk. Hellti mér gjörsamlega yfir fólkið þegar það sagðist sko ekki ætla að þrífa betur né taka dótið; ég gæti sko bara hirt það. Ég ákvað að skella öllu dótinu í bíllinn og henda því á lóðina fyrir utan húsið þeirra. Ætlaði sko ekki að gera þeim þann greiða að fara með það á sorpu. Maður verður heldur betur að passa sig á svona pakki....

Annars gengur lífið sinn vanagang. Vinn mína vinnu og Benedikt er í leikskólanum. Frekar rólegt allt hjá okkur. Fór út að skemmta mér um miðjan október og ekkert djamm á næstunni. Ég er nefnilega að fara í laseraðgerð á augunum 17. nóv. (ef ég finn pening fyrir því) og má ekki mála augun neitt vikuna á undan. Glætan spætan að ég fari út að skemmta mér með gleraugun og ómáluð :$ Við lillimann verðum því í rólegheitum næstu vikurnar.

Deildin mín á Hrafnistu er að plana að fara til útlanda næsta vor í nokkurs konar skemmti- og vísindaferð. Auðvitað varð ég að troða mér í nefndina. Ég kemst alltaf betur og betur að því hvað ég er frek... eins og Ragnheiður sagði um daginn: "ég held að ég hafi ekki hitt eina einustu meyju sem er ekki ákveðin". Það er bara spurning hvert við eigum að fara. Mig langar helst til Parísar, New York eða Ljublana í Slóveníu en vandamálið er að við þurfum að finna eitthvað elliheimili til að skoða. Hugsa að það væri auðveldast að fara til New York. Sé til... verð nefnilega að fara að ganga í þetta bráðlega.

En allavega... bið að heilsa ykkur
PS. er að hlaða inn myndum þessa dagana. Setti meðal annars myndir úr afmælinu hans pabba og fleira. Er undir myndasíða

» 6 hafa sagt sína skoðun


Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 37685