Hildur og Benedikt
Dagsetning
18. mars 2010
Klukkan
23.07.2005 01:01:34 / perla122

Ný íbúð

Jibbí, ég er búin að kaupa mér íbúð, þ.e. formlega er ég orðin íbúðareigandi. Skrifaði undir kaupsamning í dag. Get svo líklega fengið íbúðina 8. ágúst.

Er á næturvakt núna. Skuldaði nefnilega vakt, ekki gaman. Var líka á dagvakt. Fór eftir hana niður í Nauthólsvík með Benedikt. Svakalega gott veður. Það verður víst líka svona á morgun. Ég má greinilega ekki sofa of lengi á morgun.

síðustu helgi fórum við Benedikt með Guðrúnu Svövu og Páli Steinari í dýragarðinn í Slakka. Benedikt hafði reyndar meiri áhuga á leiktækjunum og bílunum en dýrunum. Renndum svo við á Laugarvatni og kíktum í heimsókn til Ragnheiðar og Palla. Á föstudagskvöldinu fórum við líka í tívolí. Benedikt var svo hugrakkur, þorði alveg að fara í nokkur tæki. Á laugardaginn fórum við svo í bíó á Madagascar. Algjör dekurhelgi með Benedikt.

Ég bið að heilsa að sinni.....


» 125 hafa sagt sína skoðun

09.07.2005 14:16:03 / perla122

Myndir

Ætlaði bara að láta vita að það eru komnar inn myndir frá Thailandi. Reyndar ekki allar, á eftir að setja seinni hlutann ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.07.2005 00:03:51 / perla122

Jæja jæja

Ég er komin heim...... reyndi að skrifa úti, var búin að skrifa langa færslu þegar tölvan ákvað að slökkva á mér. Varð nett pirruð og nennti ekki að skrifa aftur. Vil benda þeim á sem langar til að heyra ferðasöguna að kíkja á bloggið hennar Siggu. Ætla svo að skella inn myndum.

Annars er ég útskrifuð og orðin hjúkrunarfræðingur. Ótrúlegt en satt. Útskriftardagurinn var rosalega fínn. Athöfnin var reyndar ansi löng enda var verið að útskrifa 801 manneskju. Svo fór ég heim til mömmu þar sem veislan fór fram. Um kvöldið fórum við Ragnheiður og Helga í bæinn og vorum á djamminu til um 3. Ég held að ég sé alveg dottin úr þessu djammlífi. Fannst ekkert neitt rosalega gaman. Geri kannski eina tilraun enn í sumar.

Um helgina fórum við Benedikt og mamma í útilegu á Sauðárkrók. Ég keypti mér þetta fína tjald í síðustu viku og tjölduðum við í grenjandi rigningu á föstudaginn. Á laugardeginum fórum við í sund, fengum okkur að borða og lögðum okkur síðan :) Kíktum svo á Hóla í Hjaltadal. Hef aldrei komið þangað áður en fannst þetta afskaplega fallegur staður. Við grilluðum síðan um kvöldið og fórum snemma í bólið. Á sunnudaginn pökkuðum við tjaldinu niður í roki og það vildi ekki betur til að stöngin í tjaldinu slitnaði. Þvílíkt drasl. var alveg brjáluð þegar ég fór með hana í viðgerð í dag. En allavega, við kíktum svo í Glaumbæ í Skagafirði sem er gamall torfbær. Benedikt fannst alveg svakalega gaman að skoða öll þessi gömlu hús. Fórum svo í sund á Blönduósi. Mæli ekkert sérstaklega vel með þessari sundlaug,enginn af þeim sem við sáum í sturtu þvoði sér án sundfata, fannst það ekki geðslegt. Rúna og Jón voru síðan að skíra litlu dúlluna sína í Stóradal. Á leiðinni í skírnina sagði ég við mömmu að ég væri alveg viss um að stelpan ætti að heita Katla eða Klara. Og viti menn, heitir stelpan ekki Katla Rún. Til lukku með nafnið.

Annars gengur ekkert að finna íbúð. Var eiginlega búin að slaufa það af að kaupa íbúð en það gengur ekkert betur að fá íbúð á leigu. Skoðaði eina áðan og hún var glötuð. Svo þóttist hann ætla að fá 75 þús kall fyrir hana á mánuði!!! Ég hélt nú ekki. Verð víst að halda áfram að leita.

Amma Bogga var að detta í dag og handleggsbraut sig. Hún er öll krambúleruð. Fór niður á slysó að hitta hana. Svo var hún lögð inn á bæklunardeildina. Ætla að kíkja svo á hana á morgun á meðan ég er í vinnunni.

Ætla að fara að sofa núna, heyri í ykkur "fljótlega" :)  bæbæ 


» 3 hafa sagt sína skoðun


Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Heimsóknir
Í dag:  32  Alls: 37683