Tvær vikur búnar af sumarfríinu og því rétt hálfnað. Fyrsta
vikan var bara tekin rólega,bíltúrar hingað og þangað og svo
auðvitað fór mikill tími í að hlakka til fyrir Rhodosferðina okkar
Benedikts.
Laugardaginn 21. júlí vöknuðum við kl. 3:30 um nóttina. Benedikt
fannst þetta ægilega skrýtið, talaði um það heillengi á eftir að
hafa þurft að vakna um miðja nótt. Flugið út gekk ágætlega,
einungis sex tímar
Það gætti á smá óþolinmæði hjá lillanum,
enda er ég búin að ákveða að kaupa DVD ferðaspilara áður en við
förum aftur út.
Hitinn á Rhodos var SVAKALEGUR. Fór örugglega ekki undir 40
stig. Einn daginn var meira að segja 48 stig en það var í bænum
Lindos. Við fórum þangað í ferðalag með ferðaskrifstofunni ásamt
því að við fórum að skoða bruggverksmiðju og nokkrar kirkjur.
Skemmtum okkur frábærlega vel. Hélt reyndar að ég myndi bókstaflega
deyja við að ganga upp brekkuna frá Lindos og að rútunni. Þetta er
nefnilega lítill bær með örþröngum götum, helst gátu ekki nema þrír
gengið hlið við hlið.
Í heild var ferðin ágæt. Benedikt var með kaupæði, vildi stöðugt
vera að kaupa og kaupa einhverja draslhluti. Ég lét það eftir honum
endrum og eins. Ég er reyndar búin að ákveða það að fara aldrei
aftur til Grikklands á þessum tíma, allt ALLT of heitt. Í fyrra
vorum við reyndar á Krít á þessum tíma, fannst það samt ekki
jafnsvaðalegt og þetta. Komst líka að þeirri niðurstöðu að lítil og
kósý hótel eru miklu betri heldur en 17 hæða, 700 herbergja, fimm
stjörnu hótel. Morgnarnir byrjuðu yfirleitt á því að bíða í korter
eftir lyftunum, við enduðum einu sinni á því að ganga niður 13
hæðir. Eftir tvo daga bað ég um flutning þar sem ég svaf ekki fyrir
áhyggjum af því að Benedikt dytti niður af svölunum. Þetta voru
nefnilega ekki mjög barnvænar svalir, stórt bil á handriðinu
akkúrat í mittishæðinni á honum. Fengum herbergi á fimmtu hæð með
engum svölum.
Á hótelinu voru allra þjóða kvikindi, Bretar, Ítalir,
Hollendingar, Grikkir og Norðurlandabúar. Flestir voru með hálft
fæði innifalið eins og við og jiminn....... þvílíkan ágang og
græðgi hef ég aldrei á ævi minni séð. Fólk hamstraði matinn eins og
þetta væri síðasta kvöldmáltíðin og skyldi svo meirihlutann eftir á
disknum sínum. Hugsar fólk ekkert um örbirgð heimsins og svöngu
börnin? Ég meina, hver étur tíu ristaðar brauðsneiðar í
morgunmat?
Eftir þetta ferðalag var ég voðalega fegin að koma heim í
"kuldann" og á jarðhæðina mína. Engir frekir og snobbaðir
útlendingar að garga á Benedikt fyrir að fikta í útisturtunum,
engar lyftur, bara fjórar tröppur niður og bara 12 stiga hiti en
ekki 48°C. Mæli samt alveg með Rhodos fyrir þá sem þola hita
mmmmmjöööög vel.
Við eigum tvær vikur eftir af sumarfríinu, sem verða nýttar í
afslöppun og sumarbústaðaferð með ömmu Sigrúnu. Jebbsss..... við
erum enn eitt árið að fara í Steingrímsstöð við Sogið. Finnst
sumarið vera alveg glatað ef ég kemst ekki þangað. Láta ömmu stjana
við sig og svona..... nei, smá grín. Stjana frekar við hana.
Auðvitað skellum við út stönginni, pabbi er búinn að kaupa makríl.
Benedikt er svakalega spenntur.
Læt þetta duga núna
Yassou, yamas og skál fyrir því